Umhverfi
Hótel Frón er staðsett á besta stað við Laugaveginn. Í næsta nágrenni er að finna helstu veitinga- og skemmtistaði borgarinnar. Gisting á Hótel Fróni er því kjörin fyrir þá sem vilja hafa allt í göngufæri. Starfsmenn hótelsins veita ráð um val á veitinga- og skemmtistöðum og hvar er best að versla.

