Um hótelið

Hótel Frón er glæsilegt og vinalegt hótel staðsett í hjarta Reykjavíkur við Laugaveg. Hönnun þess er nútímaleg og sniðin að fjölbreyttum þörfum gesta.
Sérstaða hótelsins felst í því að mikið er lagt upp úr þægindum í hverju og einu herbergi. Markmið okkar er að gestum líði eins og heima hjá sér.
Gestir geta valið á milli mismunandi gerða af herbergjum, allt frá einstaklingsherbergjum til tveggja herbergja íbúða.
Hótelið er staðsett í kjarna 101 við Laugaveginn, sem gerir gestum okkar kleift að njóta þess besta sem Reykjavík hefur upp á að bjóða í þægilegri göngufjarlægð. Hótel Frón var byggt árið 1998 og hefur stækkað jafnt og þétt síðan.
Það er nú á fjórum hæðum og með 90 herbergjum. Verið velkomin á Hótel Frón og njótið þess að vera í vinalegu og glæsilegu umhverfi í hjarta miðborgarinnar.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Bóka herbergi


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.